Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 17. ágúst 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Matheus Nunes til Wolves (Staðfest)
Matheus Nunes í leik með Sporting
Matheus Nunes í leik með Sporting
Mynd: EPA

Hinn 23 ára gamli Matheus Nunes er genginn til liðs við Wolves frá Sporting Lisbon en hann gerir fimm ára samning við enska félagið.


Nunes er fæddur í Brasilíu en hann hefur leikið 8 landsleiki fyrir Portúgal.

Nunes hefur verið byrjunarliðsmaður í liði Sporting sem hefur unnið deildina einu sinni og bikarinn tvisvar á síðustu tveimur árum.

Wolves byggir mikið á því að fá portúgalska leikmenn en Nunes er tíundi Portúgalinn í hópnum á þessari leiktíð. Hann er annar Portúgalinn til að ganga til liðs við félagið í sumar en Gonçalo Guedes kom frá Valencia.


Athugasemdir
banner
banner
banner