Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. september 2019 17:44
Ívan Guðjón Baldursson
Lögregla stöðvaði átök í Napólí - Tveir frá Liverpool í sjúkrabíl
Mynd: Getty Images
Napoli tekur á móti Liverpool í Meistaradeildinni í kvöld og hafa átökið brotist út á milli stuðningsmanna liðanna.

Það hefur þó enginn stuðningsmaður særst alvarlega eða endað á spítala. Tveir frá Liverpool lentu í sjúkrabíl með höfuðáverka eftir að flöskur hæfðu þá í hausinn en þeir afþökkuðu spítalaferðina og ætla á leikvanginn í staðinn.

Lögregla hefur verið kölluð út minnst fimm sinnum til að skerast í leikinn og stöðva möguleg hópslagsmál.

Það er ekki liðið eitt og hálft ár síðan Sean Cox, stuðningsmaður Liverpool, endaði í dái eftir árás fótboltabullna frá Róm í apríl í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner