Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. september 2019 23:40
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Higuain brjálaðist á æfingu
Mynd: Getty Images
Gonzalo Higuain er búinn að gera eitt mark í þremur leikjum hjá Juventus á tímabilinu og virðist ekki alveg vera búinn að finna taktinn.

Ítalskir fjölmiðlar segja hann vera of þungan en það er klárt mál að eitthvað virðist vera að angra sóknarmanninn.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband frá æfingu Juve í dag þar sem Higuain náði ekki til knattarins.

Argentínumaðurinn brást furðulega illa við. Hann hjólaði í nærliggjandi þjálfara og réðst svo á auglýsingaborða af mikilli reiði.

Liðsfélagar hans náðu að róa hann niður en þetta ýtir stoðum undir þá orðróma að Higuain sé ekki alveg klár í slaginn með Ítalíumeisturunum margföldu.

Athugasemdir
banner
banner
banner