Fotbolti.net
17.09.20 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Kolasinac á leið til Leverkusen?

Kolasinac á leið til Leverkusen?
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayer Leverkusen hefur mikinn áhuga á að fá Sead Kolasinac, varnarmann Arsenal í sínar raðir.

Kolasinac hefur leikið 105 leiki með Arsenal síðan hann kom frítt frá Schalke árið 2017.

Kolasinac er hins vegar ekki ofarlega í goggunarröðinni í dag en Ainsley Maitland-Niles, Kieran Tierney og Bukayo Sako virðast allir vera á undan honum.

Hinn 27 ára gamli Kolasinac er sagður spenntur fyrir því að fara aftur til Þýskalands af fjölskylduástæðum.
Schalke hefur sýnt áhuga á að fá Kolasinac aftur í sínar raðir en líklegast þykir að Leverkusen kaupi hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.