Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. september 2021 22:32
Victor Pálsson
Leonardo: Messi vildi klára ferilinn hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála Paris Saint-Germain, viðurkennir að Lionel Messi hafi ekki viljað yfirgefa Barcelona í sumar.

Messi þurfti að lokum að kveðja Barcelona vegna fjárhagsvandræða en hann hafði leikið þar allan sinn feril.

PSG var ekki lengi að setja sig í samband við Messi eftir þessar fréttir og spilar hann nú í París.

Messi hafði sjálfur hugmyndir um að klára ferilinn á Nou Camp en það gekk ekki upp.

„Ég held að hann hafi viljað vera áfram hjá Barcelona. Það var nokkuð augljóst að það var ekki hans vilji að fara og klára ferilinn þarna," sagði Leonardo.

„Ég get ekki falið það að við höfum haft samband áður. Það gerðist þó alltaf eftir janúarmánuðinn þegar hann átti sex mánuði eftir af samningnum."
Athugasemdir
banner
banner