Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 17. september 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnar Bergmann framlengir við Aftureldingu
Lengjudeildin
Gunnar Bergmann Sigmarsson
Gunnar Bergmann Sigmarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Bergmann Sigmarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Aftureldingu. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2025.


Gunnar er 21 árs gamall varnarmaður og hefur verið í lykilhlutverki í liði Aftureldingar síðan hann gekk til liðs við félagið frá KFG síðasta vetur.

Það er mikil ánægja með störf Gunnars í Mosfellsbænum og eru menn spenntir að sjá hann taka næstu skref með félaginu.

Hann hefur leikið 18 af 21 leik liðsins í Lengjudeildinni í sumar en liðið er í 7. sæti fyrir lokaumferðina í dag.


Athugasemdir
banner
banner