Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 17. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Kjartan Henry með Lewandowski og Aguero á lista
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason hefur skorað 10 mörk í 12 leikjum með Vejle í dönsku B-deildinni í vetur. Það setur hann ofarlega á lista yfir markahæstu leikmenn tímabilsins í Evrópu.

Kjartan Henry hefur skorað mark á 0,83 leikja fresti og hann er í góðum félagsskap á meðal markahæstu manna Evrópu.

Skoska blaðið The Courier tók þessa tölfræði saman þar sem Lawrence Shankland hefur skorað 13 mörk í 8 leikjum með Dundee í skosku B-deildinni á tímabilinu eða 1,63 mark að meðaltali í leik.

Robert Lewandowski, framherji Bayern Munchen, er með ellefu mörk í sjö leikjum eða 1,57 mörk að meðaltali í leik.

Listi The Courier - Markahæstu menn Evrópu:
Lawrence Shankland (Dundee United) 13 mörk í 8 leikjum – 1.63 mörk að meðaltali.
Robert Lewandowski (Bayern Munchen) 11 mörk í 7 leikjum - 1.57 mörk að meðaltali.
Tino Kadewere (AC Le Havre) 10 mörk í 8 leikjum - 1.25 mörk að meðaltali í leik
Donyell Malen (PSV Eindhoven) 10 mörk í 9 leikjum - 1.11 mörk að meðaltali
Kjartan Henry Finnbogason (Vejle BK) 10 mörk í 12 leikjum - 0.83 mörk að meðaltali.
Aleksandr Sobolev (KS Samara) 10 mörk í 12 leikjum – 0.83 mörk að meðaltali.
Ivan Sergeev (Torpedo Moskva) 10 mörk í 17 leikjum - 0.59 mörk að meðaltali.
Jermain Defoe (Rangers) 9 mörk í 7 leikjum – 1.29 að meðaltali í leik
Jean-Pierre Nsame (BSC Young Boys) 9 mörk í 10 leikjum– 0.90 mörk að meðaltali.
Sergio Aguero (Manchester City) 8 mörk í 8 leikjum – 1 mark að meðaltali
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner