Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, reiknar ekki með að fá nýja leikmenn til félagsins í janúar.
Tottenham hefur átt erfitt uppdráttar í byrjun tímabils og eftir tap gegn Colchester í enska deildabikarnum á dögunum sagði Pochettino að hann ætlaði að styrkja hópinn í janúar.
Pochettino hefur nú bakkað með þessi ummæli en hann reiknar ekki með að kaupa menn í janúar.

„Nei, ég hef ekki trú á því. Ég hef trú á leikmönnunum sem við höfum hjá Tottenham í dag," sagði Pochettino í dag.
„Ég virði allar skoðanir og ég veit að það verður fólk sem segir 'við þurfum að breyta' eða 'við þurfum að fá menn eða láta menn fara' en það ef það er mín ákvörðun þá ætla ég að standa með mínum leikmönnum því ég veit að þeir hafa gæðin."
Athugasemdir