Enska B-deildarfélagið Bournemouth nældi sér í varnarmann undir lok gluggans í gær en Cameron Carter-Vickers er kominn frá Tottenham á láni út tímabilið.
Carter-Vickers er 22 ára gamall, var á láni hjá bæði Stoke og Luton Town á síðustu leiktíð en hann hjálpaði Luton að halda sæti í B-deildinni.
Hann hefur aldrei spilað úrvalsdeildarleik með Tottenham en hefur þó spilað í báðum bikarkeppnunum.
Carter-Vickers er nú mættur til Bournemouth á láni út tímabilið en Tottenham á kost á því að kalla hann til baka í janúar.
Athugasemdir