Chelsea vann naumann 1-0 sigur gegn Brentford í gær. Ben Chilwell skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks.
Það var eina skot Chelsea á rammann en Brentford var betri aðilinn í leiknum og það var Edourad Mendy markverði Chelsea að þakka að liðið fór með þrjú stig úr leiknum.
Shaka Hislop fyrrum markvörður í ensku úrvalsdeildinni hrósaði Mendy í hástert eftir leikinn og sagði hann vera besta markvörð deildarinnar um þessar mundir.
„Hann er orðinn besti markvörður deildarinnar. Ederson er betri í fótunum en Mendy er betri en Ederson að verja. Mendy er miklu betri núna en hann var á sama tíma í fyrra og það er slæm tilhugsun ef hann heldur áfram á þessari braut. Ég get ekki hrósað honum nógu mikið," sagði Hislop.
Athugasemdir