17.11.15 - 19:42
Alexander Freyr Tamimi
Landsliðsmarkvörður Mexíkó í Þór/KA (Staðfest)

Cecilia Santiago leikur með Þór/KA næsta sumar.

Mynd: Heimasíða Þór/KA

Cecilia Santiago leikur með Þór/KA næsta sumar.

Mynd: Heimasíða Þór/KA
Mexíkóski landsliðsmarkvörðurinn Cecilia Santiago hefur skrifað undir samning við Þór/KA um að verja mark Akureyrarliðsins á næstu leiktíð.
Santiago tekur við markvarðarstöðunni af Roxanne Barker, sem undanfarin tvö tímabil hefur staðið á milli stanganna. Mun hún ekki geta spilað næsta sumar vegna Ólympíuleikanna í Rio de Janeiro.
Santiago tekur við markvarðarstöðunni af Roxanne Barker, sem undanfarin tvö tímabil hefur staðið á milli stanganna. Mun hún ekki geta spilað næsta sumar vegna Ólympíuleikanna í Rio de Janeiro.
Santiago lék síðast með Appolo Limasol á Kýpur, en árið 2013 lék hún í Bandaríkjunum. Hún er einungis 21 árs gömul en lék með landsliði Mexíkó á HM 2015 sem fram fór í Kanada.
