Fotbolti.net
17.11.15 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Liðsfélagarnir Senna og Raul hættir (Staðfest)

Raul gerði garðinn frægan hjá Real Madrid þar sem hann skoraði 228 mörk í 550 deildarleikjum.

Raul gerði garðinn frægan hjá Real Madrid þar sem hann skoraði 228 mörk í 550 deildarleikjum.

Canon

Mynd: Getty Images

Spánverjarnir Marcos Senna og Raul eru búnir að leggja skónna á hilluna eftir að hafa tekið síðasta tímabilið á ferlinum saman hjá New York Cosmos.

Félagarnir, sem eru 39 og 38 ára gamlir, spiluðu báðir í lokaleik sínum sem var úrslitaleikur amerísku NASL keppninnar.
Cosmos vann úrslitaleikinn þar sem Argentínumaðurinn Gaston Cellerino gerði þrennu í 3-2 sigri á Ottawa Fury.

„Ég er mjög ánægður. Þetta var síðasti leikur ferilsins og ég er mjög stoltur af öllu sem ég hef afrekað,\" sagði Raul eftir leikinn.

„Núna hef ég nýtt líf með nýjum markmiðum. Ég er ánægður en um leið mjög sorgmæddur.\"

Senna og Raul hafa verið félagar lengi og var Senna mjög ánægður að ljúka ferlinum við hlið Raul.

„Að vinna við hlið Raul er frábært. Ég er þakklátur fyrir að hafa verið liðsfélagi hans því hann skoraði mörg mörk og vann leiki upp á eigin spýtur. Í dag skoraði hann kannski ekki en lagði samt upp.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.