Dedryck Boyata, varnarmaður belgíska landsliðsins, var óvænt mættur í treyju Michy Batshuayi í 4-1 sigri liðsins gegn Rússlandi í undankeppni Evrópumótsins í gær.
Þegar leikur Rússland og Belgíu hófst var Boyata óvænt í treyju Batshuayi. Boyata var í eigin stuttbuxum en virtist hafa ruglast í klefanum á treyjum á einhvern ótrúlegan hátt.
Í síðari hálfleiknum var Boyata kominn í rétta treyju en myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Batshuayi hafði gaman af þessu og birti myndina af Boyata í treyjunni.
He realized his dream 🙏🏾😂😂😂 https://t.co/Ui4M3Z6XDd
— Michy Batshuayi (@mbatshuayi) November 16, 2019
Athugasemdir