Fotbolti.net
17.11.19 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Mónakó og Wolves á eftir Kessie

Franck Kessie er eftirsóttur

Franck Kessie er eftirsóttur

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið AC Milan gæti selt Franck Kessie í janúar en mikill áhugi er á Fílabeinsstrendingnum.
Kessie er 22 ára gamall og hóf feril sinn á Ítalíu hjá Atalanta en hann heillaði fyrst í B-deildinni með Cesena tímabilið 2015-2016.

Atalanta lánaði hann til Milan frá 2017 til 2019 áður en Mílanóliðið keypti hann í sumar.

Samkvæmt Gazzetta dello Sport þá er mikill áhugi á honum en Mónakó og Wolves vilja ólm fá hann í janúar.

Kessie er metinn á 25 milljónir evra en hann á 39 landsleiki að baki með Fílabeinsströndinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.