17.12.13 - 14:53
Elvar Geir Magnússon
Hörður Fannar Björgvinsson í Fram (Staðfest)

Hörður og þjálfari Fram, Bjarni Guðjónsson.

Mynd: Fram.is

Framarar hafa fengið til sín ungan og efnilegan markvörð, Hörður Fannar Björgvinsson skrifaði undir þriggja ára samning við Fram í morgun en hér að neðan má sjá fréttatilkynningu frá félaginu.
Einn efnilegasti markmaður landsins til liðs við Fram
Hörður Fannar Björgvinsson markvörður U17 ára liðs Íslands skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við Fram. Hörður Fannar sem er uppalinn hjá Stjörnunni er fæddur árið 1997 og því aðeins 16 ára en hann var eftirsóttur af mörgum félögum í úrvalsdeildinni.
Hann hefur undanfarið æft með Fram og lék hann til að mynda allan leikinn þegar Fram sigraði ÍA í æfingaleik í nóvember og 60 mínútur þegar Fram lagði Breiðablik á laugardaginn var.
Hörður Fannar hefur leikið 10 leiki með U17, þar á meðal alla leikina þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitum Evrópumóts U17 ára landsliða með frábærri frammistöðu Rússlandi í haust. Fram bíður Hörð Fannar hjartanlega velkominn til félagsins og hlakkar til samstarfsins.