17.12.13 - 19:02
Alexander Freyr Tamimi
Kristinn Jónsson til Brommapojkarna á láni (Staðfest)

Kiddi Jóns fer til Svíþjóðar um áramótin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kiddi Jóns fer til Svíþjóðar um áramótin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Jónsson, bakvörður Breiðabliks, hefur verið lánaður til sænska liðsins Brommapojkarna, en þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Kristinn fer út til Svíþjóðar þann 1. janúar og verður á láni hjá sænska úrvalsdeildarliðinu út næstu leiktíð.
Kristinn, sem hefur spilað allan sinn feril með Blikum, æfði á dögunum með Brommapojkarna og heillaði greinilega forráðamenn liðsins.

Kristinn er fæddur árið 1990 og á að baki 135 leiki í deild og bikar fyrir meistaraflokk Breiðabliks.