17.12.13 - 15:05
Elvar Geir Magnússon
Samuel Jimenez Hernandez áfram í Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samuel Jimenez Hernandez skrifaði í dag undir árs samning við Víking Ólafsvík og mun hann því leika með liðinu í 1. deild á næsta ári.
Hann gekk liðs við Víking á miðju sumri og kom við sögu í öllum leikjum liðsins í seinni umferð Pepsi-deildarinnar að undanskildum leiknum gegn FH á útivelli þar sem hann glímdi við smávægileg meiðsli.
Samuel gegndi stöðu vinstri bakvarðar síðasta sumar með góðum árangri og sýndi hann oft á tíðum frábæra takta.
„Hann er mikill fengur fyrir liðið og mun án efa miðla reynslu sinni til yngri og efnilegra leikmanna liðsins. Víkingurol.is býður Samma hjartanlega velkominn á ný.\" segir á heimasíðu Ólafsvíkurliðsins sem féll úr Pepsi-deildinni í sumar.
Hann kemur til landsins í byrjun mars á næsta ári og spilar því með liðinu í deildabikarnum á undirbúningstímabilinu.

Heimild: Vikingurol.is