Fotbolti.net
17.12.15 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ásta Vigdís til ÍA (Staðfest)

Ásta Vigdís til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða ÍA

Kvennaboltinn
Markvörðurinn Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir hefur samið við ÍA til eins árs en hún kemur á láni frá Breiðabliki.
Ásta er 19 ára og á fjölmarga U17 og U19 landsleiki að baki en hún lék með Augnabliki í 1.deild síðastliðið sumar og þar áður með ÍA í Pepsideildinni árið 2014.

„Ásta er mjög efnilegur og frambærilegur markvörður sem við bindum miklar vonir við í baráttu liðsins í Pepsideildinni 2016,\" segir á heimasíðu ÍA.

Meðfylgjandi mynd var tekin af Ástu Vigdísi og Haraldi Ingólfssyni framkvæmdastjóra KFÍA eftir að samkomulag hafði verið undirritað.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.