Fotbolti.net
17.12.15 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Brian McDermott aftur tekinn við Reading (Staðfest)

Brian McDermott aftur tekinn við Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brian McDermott hefur verið ráðinn stjóri Reading í ensku Championship deildinni á nýjan leik.
Hinn 54 ára gamli McDermott var rekinn frá Reading fyrir tæplega þremur árum síðan þegar liðið var í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

McDermott stýrði Leeds í kjölfarið í rúmt ár áður en hann fór að starfa sem njósnari hjá Arsenal.

Hann tekur við Reading af Steve Clarke sem var rekinn á dögunum.

McDermott stýrði Reading upp í ensku úrvalsdeildina árið 2012 en liðið er núna í 13. sæti í Championship deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.