Fotbolti.net
17.12.15 - 17:09
Magnús Már Einarsson

Hafþór Þrastarson í Fram (Staðfest)

Hafþór í leik með Fjarðabyggð

Hafþór í leik með Fjarðabyggð

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Fram hefur fengið varnarmanninn Hafþór Þrastarson í sínar raðir frá Fjarðabyggð en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Hinn 25 ára gamli Hafþór æfði með Þrótti á dögunum en hann hefur nú samið við Fram eftir að hafa leikið með liðinu í æfingaleik gegn Grindavík á dögunum og gegn Leikni í gærkvöldi.

Hafþór er uppalinn hjá FH en hann hefur einnig leikið með KA, Haukum og Selfossi á ferli sínum.

„Framarar bjóða Hafþór innilega velkominn og binda miklar vonir við samstarfið á komandi árum,\" segir á heimasíðu Fram.

Hafþór er fimmti leikmaðurinn sem kemur til Fram síðan Ásmundur Arnarsson tók við þjálfun liðsins en áður höfðu Brynjar Kristmundsson, Ingólfur Sigurðsson, Hlynur Atli Magnússon og Atli Fannar Jónsson samið við félagið.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.