Fotbolti.net
17.12.15 - 14:42
Magnús Már Einarsson

Jose Mourinho rekinn frá Chelsea (Staðfest)

Farinn!

Farinn!

Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur verið rekinn úr starfi.

Chelsea hefur gengið afleitlega í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og 2-1 tap gegn Leicester á mánudag var kornið sem fyllti mælinn hjá Roman Abramovich eiganda félagsins.
Chelsea er sem stendur í 16. sæti í ensku úrvalsdeildinni, stigi frá falli en liðið hefur tapað níu af sextán leikjum sínum á tímabilinu.

Mourinho tók fyrst við Chelsea árið 2004 og gerði liðið tvívegis að enskum meisturum áður en hann var rekinn árið 2007.

Portúgalinn tók á ný við Chelsea árið 2013 og undir hans stjórn varð liðið enskur meistari á síðasta tímabili.

Í vikunni hafa verið miklar vangaveltur um framtíð Mourinho og ýmsir aðilar verið nefndir til sögunnar sem mögulegir eftirmenn hans. Ekki er ljóst hver mun stýra Chelsea í næsta leik sem er á heimavelli gegn Sunderland á laugardaginn.

Var rétt hjá Chelsea að reka Mourinho? Segðu þína skoðun með kassamerkinu #fotboltinet pic.twitter.com/WJUghDa0kf

— Fotboltinet (@Fotboltinet) December 17, 2015

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.