17.12.21 - 19:00
Victor Pálsson
Clattenburg segir Taylor hafa gert stór mistök

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mark Clattenburg, einn besti dómari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, segir Anthony Taylor hafa gert stór mistök í leik Arsenal og West Ham í vikunni.
Vladimir Coufal var rekinn af velli í seinni hálfleik í 2-0 tapi gegn Arsenal og fékk það síðarnefnda einnig vítaspyrnu.
Þessi dómur virkaði ansi harður en Coufal náði klárlega til boltans en fékk þrátt fyrir það sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Taylor sá um að dæma þennan leik og ákvað að fara ekki sjálfur í skjáinn og var ansi viss um að ákvörðunin væri rétt.
Clattenburg er talinn einn besti dómari síðari ára en hann segir Taylor hafa gert mistök í einvíginu.
„Coufal vann boltann, þetta var tilraun og góð tilraun til að gera það," sagði Clattenburg í the Daily Mail.
„Hvernig getur þetta verið vítaspyrna? Þessi vítaspyrna sem Arsenal fékk var ekki rétt og það er engin spurning þar."