Fotbolti.net
17.12.21 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Kieran McKenna nýr stjóri Ipswich (Staðfest)

Kieran McKenna tekur við Ipswich en hér er hann ásamt Ole Gunnar Solskjær

Kieran McKenna tekur við Ipswich en hér er hann ásamt Ole Gunnar Solskjær

Canon

Mynd: Getty Images

Kieran McKenna er nýr stjóri Ipswich Town í ensku C-deildinni en félagið tilkynnti ráðninguna í gær.
McKenna, sem er frá Norður-Írlandi, þjálfaði unglingalið Tottenham áður en hann var ráðinn til Manchester United.

Jose Mourinho fékk hann inn í þjálfarateymið í júlí ásamt Michael Carrick.

McKenna hélt starfi sínu eftir að Mourinho var rekinn og aðstoðaði hann Ole Gunnar Solskjær og síðan Michael Carrick áður en hann hætti fyrir tveimur dögum. Martyn Pert fylgir McKenna til Ipswich.

Hann er nú tekinn við Ipswich Town í ensku C-deildinni en liðið situr í 12. sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.