17.12.21 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Shaina Ashouri Í FH (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Shaina Faiena Ashouri lék sex leiki og skoraði eitt mark fyrir Þór/KA á síðasta tímabili. Shaina er 25 ára sóknarmaður sem kom til Þór/KA um mitt tímabil.
Hún er gengin í raðir FH sem spilar í Lengjudeildinni og semur út komandi tímabil.
Hún er gengin í raðir FH sem spilar í Lengjudeildinni og semur út komandi tímabil.
„Shaina er öflugur sóknarmaður sem mun vafalítið styrkja FH liðið í þeirra baráttu sem framundan er í Lengjudeildinni. Við bjóðum hana velkomna til leiks og hlökkum til að sjá hana í FH búningnum næsta sumar," segir í tilkynningu FH.
Shaina fylgir í fótspor Colleen Kennedy sem einnig er komin í FH frá Þór/KA.
Shaina fylgir í fótspor Colleen Kennedy sem einnig er komin í FH frá Þór/KA.
