Fotbolti.net
17.12.21 - 18:00
Victor Pálsson

Tala um hann sem einn versta leikmanninn til að klæðast treyjunni

Tala um hann sem einn versta leikmanninn til að klæðast treyjunni
Canon

Mynd: EPA

Saul Niguez, leikmaður Chelsea, er alls ekki vinsæll á meðal stuðningsmanna liðsins eftir slaka frammistöðu á þessu tímabili.
Saul kom frá Atletico Madrid á láni í sumarglugganum en hefur svo sannarlega ekki staðist væntingar í London.

Margir stuðningsmenn Chelsea létu í sér heyra á samskiptamiðlum í gær eftir 1-1 jafntefli við Everton þar sem Saul kom inná sem varamaður.

Sumir tala um einhvern versta leikmann til að klæðast treyju liðsins og er honum einnig líkt við Tiemoue Bakayaoko sem gat ekkert í treyju enska félagsins.

Saul er aðeins í láni hjá enska félaginu út tímabilið og má Chelsea svo kaupa hann í sumarglugganum.

Einhverjar líkur eru þó á því að Chelsea sendi leikmanninn til baka í janúar en hann er alls ekki að standa fyrir sínu þessar vikurnar.

Eins og má sjá hér fyrir neðan voru margir sem opnuðu Twitter og ræddu spænska landsliðsmanninn.









Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.