18.01.13 - 11:57
Magnús Már Einarsson
Adkins rekinn frá Southampton - Pochettino tekur við (Staðfest)

Nigel Adkins.

Mynd: Getty Images

Nigel Adkins.

Mynd: Getty Images
Southampton hefur ákveðið að segja knattspyrnustjóranum Nigel Adkins upp störfum en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.
Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn í hans stað en hann var rekinn frá Espanyol í nóvember síðastliðnum eftir tæplega fjögurra ára starf.
Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn í hans stað en hann var rekinn frá Espanyol í nóvember síðastliðnum eftir tæplega fjögurra ára starf.
Southampton er í 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni í augnablikinu eftir að hafa gert jafntefli við Chelsea á útivelli í fyrrakvöld og unnið Aston Villa úti um síðustu helgi.
Stuðningsmenn Southampton eru margir hverjir brjálaðir yfir þessum stjóraskiptum en Adkins er í miklum metum hjá þeim.
Adkins tók við Southampton árið 2010 og kom liðinu upp um tvær deildir og upp í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik.

Mauricio Pochettino.

Mynd: Getty Images