Fotbolti.net
18.01.13 - 14:41
Magnús Már Einarsson

Edda og Ólína í Chelsea (Staðfest)

Edda Garðarsdóttir.

Edda Garðarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðskonurnar Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir hafa samið við enska félagið Chelsea en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins í dag.

Chelsea hafnaði í sjötta sæti í WSL atvinnumannadeildinni á Englandi á síðasta tímabili en nýtt tímabil þar hefst í mars.
Undafnarin fjögur ár hafa Edda og Ólína verið í lykilhlutverki hjá Örebro í Svíþjóð. Ólína lék reyndar ekkert á síðasta ári þar sem hún var í barnsburðarleyfi á síðasta ári og lék ekkert með liðinu.

Bæði Edda og Ólína hafa einnig átt fast sæti íslenska landsliðinu undanfarin ár og verða væntanlega í eldlínunni á EM í Svíþjóð í sumar.

Þær verða ekki einu íslensku leikmennirnir í WSL deildinni á komandi tímabili því fyrr í mánuðinum samdi Katrín Ómarsdóttir við lið Liverpool.

Heimild: Morgunblaðið

Ólína G. Viðarsdóttir.

Ólína G. Viðarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Mist Rúnarsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.