Fotbolti.net
18.01.13 - 16:37
Magnús Már Einarsson

Martin Rauschenberg í Stjörnuna (Staðfest)

Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar.

Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan hefur fengið danska varnarmanninn Martin Rauschenberg til liðs við sig á láni frá Esbjerg.

Þessi 21 árs gamli leikmaður æfði með Stjörnumönnum í desember og heillaði forráðamenn félagsins.
Rauschenberg kemur til Íslands um mánaðarmótin en hann á að fylla skarð Alexander Scholz sem gekk í raðir Lokeren á dögunum.

,,Hann var með okkur í desember og lék leik á móti KR. Hann sýndi það að þetta er piltur sem við getum notað. Við höfum verið að leita að manni til að taka við af Alexander Scholz og það er ekki verra að hann sé landi hans. Okkur líst vel á hann,\" sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar í samtali við Fótbolta.net í dag.

Rauschenberg hefur áður farið á reynslu hjá Leeds á Englandi og Lille í Frakklandi en hann lék sinn fyrsta leik með Esbjerg árið 2010.

Stjörnumenn eru einnig að skoða norska vinstri bakvörðinn Robert Sandnes þessa dagana en hann er mættur til félagsins á reynslu.

,,Hann æfði hjá okkur í gær og verður eitthvað áfram,\" sagði Logi í dag.

Sandnes lék í sumar með Selfyssingum undir stjórn Loga en hann mun einmitt mæta sínum gömlu félögum í Fótbolta.net mótinu á morgun þegar Stjarnan og Selfoss mætast í Kórnum klukkan 13:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.