Fotbolti.net
18.01.13 - 17:09
Daníel Freyr Jónsson

Vegard Forren til Southampton (Staðfest)

Vegard Forren.

Vegard Forren.

Canon

Mynd: Getty Images

Norðmaðurinn Vegard Forren er genginn í raðir Southampton og skrifar hann undir þriggja og hálfs árs samning hjá félaginu.
Forren kemur frá Molde í heimalandi sínu, en þar var hann fastamaður í liðinu sem hefur orðið norskur meistari tvö ár í röð.

Hann er 24 ára gamall og leikur sem miðvörður. Hafnaði hann tækifærinu á að ganga í raðir Liverpool fyrir skömmu þar sem hann taldi sig geta fengið meiri spiltíma hjá öðru liði.

Áður hafði hann verið orðaður við lið eins og Manchester United, Fulham og Everton, en Southampton hefur nú unnið það kapphlaup.

Hjá Southampton fær hann treyju númer 15 og mun hann veita þeim Jose Fonte og Maya Yoshida samkeppni um miðvarðarstöður liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.