18.01.14 - 12:37
Ívan Guðjón Baldursson
Anderson til Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fiorentina hefur staðfest að Anderson, miðjumaður Manchester United, er kominn til félagsins á lánssamning út tímabilið.
Anderson kom til United frá Porto árið 2007 og er Brasilíumaðurinn nú orðinn 25 ára.

,,ACF Fiorentina tilkynnir að félagið hefur fengið til sín leikmanninn Anderson Luis de Abreu Oliveira á tímabundnum samning frá Manchester United FC,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Fiorentina.
Anderson, sem á átta landsleiki að baki fyrir brasilíska landsliðið, er aðeins búinn að spila fjóra úrvalsdeildarleiki á tímabilinu og hefur verið plagaður af meiðslum.
Anderson er þriðji leikmaðurinn sem kemur til Fiorentina á láni í janúar en liðið fékk Alessandro Matri, sóknarmann Milan, og Antonio Rosati markvörð nýliða Sassuolo einnig á lánssamning.

Heimild: Soccerway