Fotbolti.net
18.01.14 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Bjarki Baldvinsson í Völsung (Staðfest)

Bjarki Baldvinsson í Völsung (Staðfest)
Canon

Mynd: Hafþór Hreiðarsson

Bjarki Baldvinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt Völsung á nýjan leik en hann skrifaði undir tveggja ára samning í gær.

Bjarki hefur undanfarin tvö tímabil leikið með KA í fyrstu deildinni.
Bjarki hefur spilað 142 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 25 mörk. Fyrsti meistaraflokksleikur Bjarka var árið 2006 með Völsungi eða fyrir tæpum 8 árum þegar Bjarki var aðeins 16 ára.

,,Koma Bjarka staðfestir það að hjá Völsungi er unnið metnaðarfullt starf og er óðum að komast mynd á lið Völsunga í karla og kvennaflokki fyrir komandi tímabil,\" segir á heimasíðu Völsungs.

Bjarki mun spila með Völsungi gegn Dalvík/Reyni í Kjarnafæðismótinu í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.