Fotbolti.net
18.01.14 - 15:15
Valur Páll Eiríksson

Ji Dong-Won til Dortmund í sumar (Staðfest)

Ji Dong-Won fagnar í leik með Augsburg

Ji Dong-Won fagnar í leik með Augsburg

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Dortmund staðfesti á heimasíðu sinni í gærkvöldi að Suður-Kóreubúinn Ji Dong-Won mun ganga til liðs við þá frítt frá Sunderland í sumar.
Ji hefur verið á láni hjá Augsburg í Bundesligunni á þessu tímabili og hefur greinilega heillað Jurgen Klopp með spilamennsku sinni.

Ji spilar annað hvort sem framherji eða sóknartengiliður og hefur skorað fimm mörk í 17 leikjum það sem af er þessu tímabili með Augsburg.

Ji kom til Sunderland sumarið 2011 frá Chunnam Dragons í heimalandinu en náði aldrei að festa sig í sessi í norðurhluta Englands. Hann skoraði einungis tvö mörk í 24 deildarleikjum fyrir Sunderland.

Þetta kemur í kjölfar tilkynningar Robert Lewandowski þess efnis að hann gangi í raðir Bayern Munchen án greiðslu í sumar. Ólíklegt þykir að Ji sé ætlaður sem eftirmaður Lewandowski en hvort svo er verður tíminn að leiða í ljós.

Heimild: Heimasíða Dortmund

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.