18.01.14 - 11:49
Daníel Freyr Jónsson
Kevin de Bruyne til Wolfsburg (Staðfest)

Kevin de Bruyne.

Mynd: Getty Images

Kevin de Bruyne.

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Wolfsburg hefur klárað kaup sín á belgíska miðjumanninum Kevin de Bruyne frá Chelsea. Kaupverðið er talið nema 20 milljónum punda.
Bæði lið staðfestu fregnirnar nú í morgun, en De Bruyne skrifaði undir samning til ársins 2019 hjá Wolfsburg.
De Bruyne lék sem lánsmaður hjá Werder Bremen á síðustu leiktíð og skoraði þá 10 mörk í 33 leikjum, auk þess sem hann lagði upp önnur níu mörk. Hann er því í miklum metum í þýska boltanum.
Bayer Leverkusen, Schalke og Gladbach höfðu öll áhuga á De Bruyne en hann hafði misst sæti sitt í liði Chelsea.