18.01.14 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Margrét Ingþórsdóttir í Þrótt (Staðfest)

Margrét ásamt Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur þjálfara Þróttar.

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur fengið til liðs við sig Margréti Ingþórsdóttur frá Fylki en Þróttur leikur í 1. deild kvenna á komandi sumri.
Margrét er 24 ára markvörður og er uppalin í Reyni Sandgerði. Hún á að baki 86 leiki í deild og bikar í meistaraflokki.
Síðastliðið sumar lék hún 3 leiki í 1.deild kvenna fyrir Fylki sem vann 1.deildina með yfirburðum en var lánuð seinni hlutann til nýliða Víkings Ó og lék með þeim 7 leiki í 1.deildinni.
Margrét hefur einnig leikið með Víði Garði, GRV, ÍA og lengst af með Keflavík eða fjögur heil tímabil á árunum 2008-2012.
,,Komu Margrétar er fagnað í Laugardalnum og hún boðin sérstaklega velkomin í Þrótt,\" sagði í tilkynningu félagsins.