Fotbolti.net
18.01.16 - 16:27
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Guidolin tekinn við stjórnartaumum Swansea (Staðfest)

Guidolin er tekinn við Swansea.

Guidolin er tekinn við Swansea.

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea staðfestir á heimasíðu sinni í dag að Francesco Guidolin hefur verið ráðinn nýr knattspyrnustjóri.

Sá ítalski mun vinna við hlið Alan Curtis sem hefur stýrt liðinu undanfarnar vikur en Guidolin hafa völdin þegar kemur að lokaákvörðunum.
Guidolin verður á Liberty leikvanginum í Wales í kvöld og horfir á Swansea mæta Watford í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi Þór Sigurðsson leikur með Swansea eins og allir vita en liðið er í fallsæti.

7. janúar hafði Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, tilkynnt að Curtis myndi halda um stjórnartaumana út tímabilið.

„Þrátt fyrir að Alan Curtis hafi verið ráðinn út tímabilið vissi hann að við vorum að reyna að finna mann sem gæti aðstoðað okkur við að komast á beinu brautina. Við höfum reynt að finna rétta einstaklinginn og teljum okkur hafa fundið hann í Francesco. Hann er með flotta ferilskrá, sérstaklega hjá Udinese. Hann bjó þar til öflugt lið þrátt fyrir að fá ekki mikinn pening til þess,\" segir Jenkins.

Guidolin er 60 ára og var með Udinese 2010-2014. Þá hefur hann þjálfað Parma, Palermo, Mónakó og fleiri lið. Nafn hans var þekkt þegar hann gerði Vicenza að bikarmeisturum 1997.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.