Fotbolti.net
18.01.16 - 21:39
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Nemanja Vidic er samningslaus (Staðfest)

Nemanja Vidic er samningslaus (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Serbneski varnarjaxlinn Nemanja Vidic er frjáls ferða sinn eftir að hann ákvað að láta rifta samningi sínum við Inter.

Vidic, sem er 34 ára gamall, kom til Inter fyrir einu og hálfu ári síðan og hefur leikið 23 deildarleiki fyrir félagið síðan þá.
„FC Internazionale vill tilkynna að samkomulag hefur náðst um samningsriftun Nemanja Vidic,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.

„Serbneski varnarmaðurinn, sem kom til Inter í júlí 2014, lék 28 leiki fyrir ítalska félagið á síðasta tímabili.\"

Óljóst er hvert Vidic ætlar að fara næst en ólíklegt er að Serbinn snúi í serbnesku deildina á næstunni.

„Ég vil þakka Inter fjölskyldunni og öllum stuðningsmönnum fyrir hjálpina. Ég óska þessu félagi alls hins besta í framtíðinni. Áfram Inter,\" sagði Vidic kátur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.