Fotbolti.net
18.01.16 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson

Timm Klose til Norwich (Staðfest)

Timm Klose til Norwich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Norwich City er búið að festa kaup á svissneska miðverðinum Timm Klose.

Klose er 27 ára gamall og hefur ekki tekist að festa sig í sessi hjá sterku liði Wolfsburg þar sem hann hefur verið síðan sumarið 2013.
Kaupverð er óuppgefið en talið nema rúmlega 7 milljónum punda, en þetta er fjórði leikmaðurinn sem kemur til félagsins í janúar, eftir Matt Jarvis, Ivo Pinto og Ben Godfrey.

Klose er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning sem heldur honum hjá félaginu þar til sumarið 2019.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.