Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 18. janúar 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Brescia vill 50 milljónir fyrir Tonali
Mynd: Getty Images
Fregnir frá Ítalíu herma að nýliðar Brescia vilji fá 50 milljónir evra fyrir miðjumanninn efnilega Sandro Tonali.

Juventus, PSG, Liverpool og Manchester City hafa verið orðuð við Tonali sem var talinn falur fyrri 35 milljónir evra í janúar.

Verðmiðinn á honum hefur hækkað um 15 milljónir enda hefur Tonali sýnt mikil gæði á leiktíðinni, þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall og í fallbaráttuliði.

Tonali á þrjá landsleiki að baki fyrir Ítalíu og hefur verið líkt við tvo af bestu miðjumönnum síðustu áratuga, Daniele De Rossi og Andrea Pirlo.
Athugasemdir
banner
banner
banner