Sóknarmaðurinn Árni Vilhjálmsson er mættur til Rússlands á reynslu hjá Krylia Sovetov Samara.
Líklegt þykir að Árni semji við Krylia en félagið er í leit að framherja þar sem Yegor Golenkov er á leið til Rostov.
Krylia er í 2. sæti í B-deildinni í Rússlandi og í harðri baráttu um að fara upp í efstu deild.
Tvö efstu liðin fara upp en liðin í þriðja og fjórða sæti fara í umspil. Krylia er stigi á undan þriðja sætinu og tveimur á undan fjórða sætinu. 26 umferðum er lokið af 42.
Hinn 26 ára gamli Árni hefur verið félagslaus síðan hann fór frá Kolos Kovalivka í Úkraínu síðastliðið sumar.

Árni, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, hefur einnig leikið með Termalica Nieciecza í Póllandi, Chornomorets Odesa í Úkraínu, Lilleström í Noregi og Jonköpings í Svíþjóð.
Athugasemdir