18.02.13 - 23:01
Elvar Geir Magnússon
Einar Marteinsson í Aftureldingu (Staðfest)

Mynd: Raggi Óla

Mynd: Raggi Óla
Afturelding hefur fengið varnarmanninn Einar Marteinsson til liðs við sig en hann skrifaði undir samning hjá félaginu í kvöld.
Einar hefur síðustu tvö ár leikið með Njarðvík en þar áður lék hann með Valsmönnum.
,,Koma Einars er mikill fengur fyrir lið Aftureldingar á komandi sumri,\" segir í fréttatilkynningu frá Aftureldingu.
,,Auk þess að vera öflugur varnarmaður hefur Einar verið iðinn við markaskorun en síðustu tímabil hefur hann skorað 5-10 mörk á hverju sumri. Afturelding býður Einar velkominn í sínar raðir.\"
Myndin til hliðar er frá undirritun samningsins í kvöld. Frá vinstri: Baldvin Jón Hallgrímsson aðstoðarþjálfari, Einar Marteinsson og Pétur Magnússon, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Knattspyrnudeild Aftureldingar.