Fotbolti.net
18.02.13 - 22:24
Ívan Guðjón Baldursson

McFadden aftur heim til Motherwell (Staðfest)

McFadden aftur heim til Motherwell (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skoski landsliðsmaðurinn James McFadden er snúinn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt, Motherwell í Skotlandi.

McFadden er 29 ára gamall sóknarmaður sem kemur á frjálsri sölu frá Sunderland en áður en hann gekk til liðs við Sunderland lék hann fyrir Birmingham City og Everton.
McFadden skoraði 32 mörk í 70 leikjum fyrir Motherwell áður en hann gekk til liðs við Everton árið 2003.

McFadden á 48 landsleiki að baki og hefur skorað í þeim 15 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.