Fotbolti.net
18.02.13 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Milan Baros heim til Tékklands (Staðfest)

Milan Baros heim til Tékklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tékkneski framherjinn Milan Baros hefur gengið til liðs við Banik Ostrava í heimalandi sínu.

Baros hóf feril sinn hjá Banik Ostrava áður en hann gekk í raðir Liverpool árið 2001.
Þessi 31 árs gamli leikmaður spilaði síðan með Aston Villa og Lyon.

Undanfarin fjögur ár hefur Baros leikið með Galatasaray en hann yfirgaf herbúður tyrkneska félagsins í síðustu viku.

Baros hefur gert eins og hálfs árs samning við Banik Ostrava en hann á þó kost á að fara frítt í félag utan Tékklands næsta sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.