Fotbolti.net
18.02.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Paul Ince tekinn við Blackpool (Staðfest)

Paul Ince tekinn við Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Paul Ince hefur verið ráðinn stjóri Blackpool í ensku Championship deildinni.

Ince hefur horft á alla leiki Blackpool á tímabilinu þar sem sonur tans Tom leikur með liðinu.

Tom hefur skorað 17 mörk í 33 leikjum og vakið mikla athygli en hann mun nú leika undir stjórn Paul.
,,Það er skrýtið að sitja hér sem knattpsyrnustjóri eftir að hafa áður horft á Blackpool sem stuðningsmaður þegar ég var að horfa á son minn spila,\" sagði Ince.

Ince er 45 ára gamall en hann stýrði síðast Notts County árið 2011. Ince hefur einnig verið stjóri hjá Macclesfield, MK Dons og Blackburn á ferli sínum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.