Fotbolti.net
18.02.14 - 16:32
Magnús Már Einarsson

Harry Monaghan í Víking (Staðfest)

Harry Monaghan í Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Víkingur Reykjavík hefur samið við skoska miðjumanninn Harry Monaghan en þetta kemur fram á Vísi.

Harry var á reynslu hjá Víkingi á dögunum og hann hefur nú skrifað undir eins árs samning við félagið.
Þessi 21 árs gamli leikmaður er fæddur í Glasgow og uppalinn hjá Hibernian þar sem hann spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2012.

Harry kemur til landsins í dag en Víkingar eru einnig að fá Alan Löwing og Igor Taskovic til landsins fyrir næsta leik í Lengjubikarnum gegn Selfyssingum á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.