18.02.16 - 16:24
Magnús Már Einarsson
Magni Fannberg ráðinn til Brann (Staðfest)

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Magni Fannberg hefur verið ráðinn í nýtt starf sem þróunarstjóri hjá Brann í Noregi. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Hinn 36 ára gamli Magni stýrði Brommapojkarna þegar liðið féll úr sænsku B-deildinni í fyrra. Þar áður hafði hann þjálfaði yngri flokka Brommapojkarna í nokkur ár.

Hjá Brann starfar Magni í samvinnu við yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu, Rune Soltvedt, og stýrir starfinu hjá varaliði félagsins og unglingaflokkum frá 13 til 19 ára.
„Mitt hlutverk verður að stjórna starfinu í þessum yngri liðum, ráða þjálfara og halda utan um þróun yngri leikmanna félagsins, ásamt því að vera tengiliður Brann við norska knattspyrnusambandið og Toppfotball samtökin. Soltvedt verður minn yfirmaður en hann sinnti þessu starfi áður,\" sagði Magni Fannberg við mbl.is.
Magni þjálfaði á sínum tíma meistaraflokk Fjarðabyggðar. Hann var einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks Grindavíkur auk þess sem hann þjálfaði yngri flokka á Ísafirði og hjá HK og Val.