Fotbolti.net
18.02.17 - 11:15
Arnar Geir Halldórsson

Muhammed og Milos í Víking R. (Staðfest)

Muhammed Mert

Muhammed Mert

Canon

Mynd: Getty Images

Pepsi-deildarlið Víkings Reykjavíkur hefur samið við þá Milos Ozegovic og Muhammed Mert og munu þeir leika með liðinu næsta sumar.
Ozegovic er 24 ára serbneskur varnarsinnaður miðjumaður sem kemur til liðsins frá Radnicki Pirot. Hann á að baki 8 leiki í efstu deild í Serbíu og 65 leiki í næstefstu deild.

Mert er belgískur framliggjandi miðjumaður af tyrkneskum uppruna. Hann á að baki 6 leiki fyrir U15 og U16 ára landslið Tyrklands og 9 leiki fyrir U16, U17 og U18 ára landslið Belgíu.

Hann er uppalinn hjá belgísku félaginu KRC Genk en einnig á hann að baki leiki fyrir Fortuna Sittard og NEC Nijmegen í Hollandi.

Víkingur hefur misst framherjana Gary Martin, Óttar Magnús Karlsson og Viktor Jónsson í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.