Fotbolti.net
18.02.17 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Ólafur Örn og Atli Fannar í HK (Staðfest)

Atli Fannar er kominn í HK.

Atli Fannar er kominn í HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK-ingar eru að bæta við sig leikmönnum þessa dagana en í gær greindum við frá því að varnarmaðurinn Ingiberg Ólafur Jónsson væri kominn til félagsins.
Miðjumaðurinn Ólafur Örn Eyjólfsson er aftur kominn til HK-inga og hefur fengið leikheimild með liðinu. Hann skoraði á dögunum þegar HK vann Aftureldingu í 2-0 sigri í úrslitaleik B-deildar Fótbolta.net mótsins.

Ólafur er 22 ára og lék síðast með Fjarðabyggð 2015 og kom þá við sögu í sex leikjum hjá liðinu í 1. deildinni.

Þá er sóknarmaðurinn Atli Fannar Jónsson, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, einnig kominn í HK. Atli er fæddur 1995 og kemur frá Aftureldingu þar sem hann skoraði 5 mörk í 8 leikjum í 2. deildinni síðasta sumar. Hann hefur einnig leikið fyrir Fram og ÍBV.

HK hafnaði í níunda sæti Inkasso-deildarinnar í fyrra, einu stigi fyrir ofan fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.