Varnarmennirnir reynslumiklu Giorgio Chiellini og Leonardo Bonucci hjá Juventus eru báðir á meiðslalistanum.
Fyrirliðinn Chiellini fór meiddur af velli eftir 35 mínútna leik í 2-1 tapinu gegn Porto í Meistaradeildinni í kvöld. Talið er að hann verði frá í tvær vikur.
Leonardo Bonucci ferðaðist með til Portúgal en hann ku vera meiddur líka. Ítalskir fjölmiðlar segja að hann gæti verið frá næstu tuttugu daga.
Einnig er miðjumaðurinn Rodrigo Bentancur að glíma við meiðsli en hann mun fara í skoðun síðar í dag.

Seinni leikur Juventus og Porto verður þann 9. mars.
Athugasemdir