Fotbolti.net
18.02.22 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Birgir Baldvins lánaður til Leiknis (Staðfest)

Birgir Baldvins lánaður til Leiknis (Staðfest)
Canon

Mynd: Haukur Gunnarsson

Birgir Baldvinsson hefur verið lánaður frá KA til Leiknis þriðja tímabilið í röð.

Birgir er fæddur árið 2001 og spilar sem bakvörður. Hann lék einnig með Aftureldingu á síðasta tímabili, spilaði átta leiki með Aftureldingu og fjóra með Leikni.

Í janúarmánuði var hann mjög öflugur með Leikni á Fótbolta.net mótinu og skoraði þrjá leiki í röð.
Hann á að baki einn leik með KA í efstu deild en sá leikur kom árið 2018.

Leiknir

Komnir
Maciej Makuszewski frá Póllandi
Mikkel Dahl frá Færeyjum
Mikkel Jakobsen frá Færeyjum
Óttar Bjarni Guðmundsson frá ÍA
Róbert Hauksson frá Þrótti R.
Sindri Björnsson frá Grindavík
Birgir Baldvinsson frá KA (á láni)
Andi Hoti frá Þrótti R. (var á láni)

Farnir
Ágúst Leó Björnsson hættur
Birkir Björnsson í Þrótt R.
Ernir Bjarnason til Keflavíkur
Guy Smit í Val
Máni Austmann Hilmarsson í FH
Manga Escobar
Octavio Paez
Róbert Quental Árnason til Ítalíu (lán)
Sólon Breki Leifsson hættur
Sævar Atli Magnússon til Danmerkur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.