18.02.22 - 12:01
Elvar Geir Magnússon
Dagur Þór lánaður frá FH til Gróttu (Staðfest)

Mynd: Grótta

Mynd: Grótta

Dagur Þór Hafþórsson hefur verið lánaður frá FH til Gróttu og mun hann leika með liðinu út leiktíðina.
Dagur er 19 ára gamall varnarmaður fæddur árið 2003 og á að baki þrjá leiki fyrir U19 ára landsliðið og fimm fyrir U16 ára landsliðið.
Dagur er í hóp U19 ára landsliðsins ásamt Kjartani Kára sem taka þátt í úrtaksæfingum 21.-23. febrúar næstkomandi.
Hann lék sjö leiki með ÍH í 3. deildinni í fyrra.
„Við FH-ingar hlökkum til að fylgjast með þróun Dags á komandi tímabili og erum þess fullvissir að hann gleðji Seltirninga á komandi tímabili og komi enn sterkari til baka í Hafnarfjörðinn í haust," segir í tilkynningu FH.
Grótta hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.